Af hverju vildum við gera þetta verkefni?
Ástæðan fyrir því að við vildum fjalla um meiðsli er sú að við höfum báðir mikinn áhuga á íþróttum og öllu sem tengist þeim. Það kemur oft fyrir að fólk meiðist þegar það er að stunda íþróttir og eru meiðsli partur af því að æfa íþróttir. Þess vegna vildum við fræða ykkur aðeins meira um meiðsli, ferlið í kringum þau og það sem hægt er að gera til að koma í veg fyrir meiðsli. Við fjöllum líka aðeins um lífsstílssjúkdóma og endurhæfingu þeirra. Okkar markmið með þessu verkefni er bæði að fræðast meira sjálfir um allskonar meiðsli og endurhæfingu sem og fræða sem flesta betur um þessi mál. Við viljum að þegar fólk er búið að lesa sér til um þetta viðfangsefni, þá muni vel eftir bæði í daglegu lífi og þegar það hreyfir sig. Einnig að það geti nýtt sér það sem það hefur lært og mögulega komið í veg fyrir meiðsli í framtíðinni.